Fotbolti.net
21.01.15 - 16:38
Magnús Már Einarsson

Ray Anthony semur við meistarana í Filippseyjum (Staðfest)

Ray Anthony semur við meistarana í Filippseyjum (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Ray Anthony Jónsson hefur formlega gengið til liðs við Global í Filippseyjum.

Global hefur orðið meistari í Filippseyjum undanfarin tvö ár en liðið mun þar af leiðandi taka þátt í AFC Cup eða Asíukeppni félagsliða í sumar.
,,Eigandi klúbbsins hafði samband um hvort ég væri til að koma hingað og prófa í nokkra mánuði fyrst ég væri orðinn samningslaus. Ég var reyndar búinn að lofa honum að prófa spila hérna úti einhvertímann fyrir nokkrum árum síðan,\" sagði Ray við Fótbolta.net í fyrradag.

Árið 2010 byrjaði Ray að spila með landsliði Filippseyja en móðir hans er þaðan. Ray á 31 landsleik að baki en hann hefur ekkert getað spilað með landsliðinu í eitt ár vegna meiðsla. Ray útilokar ekki endurkomu í landsliðið.

,,Kannski er ennþá smá von um að spila með landsliðinu en fyrst þarf maður að komast í leikform, standa sig og vera heill,\" sagði Ray.

Hinn 35 ára gamli Ray hefur leikið með Keflavík undanfarin tvö ár en hann var áður á mála hjá Grindavík í áraraðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.