Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 21. janúar 2021 13:47
Magnús Már Einarsson
Aguero með kórónuveiruna
Mynd: Getty
Sergio Aguero, framherji Manchester City, hefur greinst með kórónuveiruna.

Aguero hafði verið í sóttkví eftir að fjölskyldumeðlimur hans hafði greinst með veiruna.

Aguero staðfesti á Twitter í dag að hann hafi greinst með veiruna og sé nú í einangrun. Aguero hefur fundið fyrir einkennum og er nú að jafna sig.

Argentínumaðurinn hefur ekki ennþá skorað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en hann hefur einungis spilað samanlagt 141 mínútu í öllum keppnum.

Aguero var mikið meiddur fyrir áramót og hann hefur misst af síðustu leikjum þar sem hann hefur verið í sóttkví.
Athugasemdir
banner
banner
banner