Fotbolti.net
21.01.22 - 23:00
Victor Pálsson

Sarr fær ekki að yfirgefa Chelsea

Sarr fær ekki að yfirgefa Chelsea
Canon

Mynd: Getty Images

Malang Sarr, varnarmaður Chelsea, verður líklega áfram hjá félaginu í janúarglugganum þrátt fyrir áhuga annars staðar.
Blaðamaðurinn Santi Aouna hjá Foot Mercato greinir frá þessu en Sarr hefur komið við sögu í níu leikjum á tímabilinu.

Fyrr í vetur var talað um að Sarr vildi mikið komast burt frá Chelsea og fá fleiri mínútur á vellinum.

Everton, West Ham, Roma og Newcastle hafa öll sýnt Sarr áhuga en hann verður 23 ára gamall á sunnudaginn.

Samkvæmt Foot Mercato verður Sarr áfram í herbúðum Chelsea en félagið vill notast við leikmanninn til að auka breiddina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.