21.02.15 - 12:30
Arnar Geir Halldórsson
Jermaine Pennant til Wigan (Staðfest)

Pennant í leik með Stoke

Mynd: Getty Images

Pennant í leik með Stoke

Mynd: Getty Images
Jermaine Pennant er genginn til liðs við Wigan Athletic í Championship deildinni.
Þessi 32 ára kantmaður var án félags og getur því gengið til liðs við Wigan þrátt fyrir að félagsskiptaglugginn sé lokaður.
Pennant hefur komið víða við á ferli sínum en hann var á sínum tíma talinn einn efnilegasti leikmaður Englands. Arsenal borgaði til að mynda 2 milljónir punda fyrir kappann þegar hann var aðeins 15 ára gamall.
Síðasta félag Pennant var Pune City í Indlandi þar sem hann lék meðal annars með David Trezeguet en Pennant staldraði stutt við þar og er kominn aftur heim til Englands.
Wigan berst fyrir lífi sínu í Championship deildinni en liðið er í næstneðsta sæti deildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti.

Heimild: Sky