Fotbolti.net
21.03.17 - 19:30
Magnús Már Einarsson

Wilmots tekur við Fílabeinsströndinni (Staðfest)

Wilmots tekur við Fílabeinsströndinni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Marc Wilmots hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Fílabeinsstrandarinnar.

Wilmots tekur við af Michael Dussuyer sem hætti eftir að Fílabeinsströndin komst ekki upp úr riðlinum í Afríkukeppninni fyrr á þessu ári.

Hinn 48 ára gamli Wilmots þjálfaði belgíska landsliðið frá 2012 og þar til í fyrrasumar.

Wilmots var rekinn eftir að Belgía tapaði 3-1 gegn Wales í 8-liða úrslitum á EM í fyrra.
Fílabeinsströndin mætir Rússlandi og Senegal í vináttuleikjum á næstu dögum en Wilmots mun fylgjast með þeim leikjum áður en hann tekur formlega við sem þjálfari.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.