Fotbolti.net
21.03.20 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson

Lille hafnaði boði Tottenham í Luis Campos

Lille hafnaði boði Tottenham í Luis Campos
Canon

Mynd: Yahoo

Tottenham er á höttunum eftir Luis Campos, yfirmanni íþróttamála hjá franska félaginu Lille.
Franskir fjölmiðlar greina frá því að Tottenham hafi reynt að krækja í Campos en Lille hafnaði tilboðinu.

Campos er mikils metinn í fótboltaheiminum og hefur fengið mikið lof fyrir störf sín bæði hjá Lille og Mónakó. Hjá Mónakó byggði hann upp liðið sem endaði á að vinna frönsku deildina 2017 á meðan Lille hefur fest sig í sessi sem Meistaradeildarbaráttulið að undanförnu.

Campos er talinn hafa áhuga á að starfa fyrir Tottenham, sem mun bjóða aftur í hann í sumar samkvæmt L'Equipe.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.