Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. apríl 2019 16:37
Arnar Helgi Magnússon
Coutinho stressaður fyrir leikjunum gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho mætir sínum gömlu félögum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Coutinho, sem að spilar með Barcelona í dag, segist stressaður að mæta sínu gamla félagi, Liverpool.

„Þessir leikir verða sérstakir fyrir mig. Ég er orðinn stressaður af því að ég veit að það styttist í þessa stund. Þetta verða sérstök kvöld," sagði Coutinho eftir sigurinn á Real Sociedad í gær.

Coutinho gekk í raðir Barcelona frá Liverpool í janúar í fyrra. Síðan þá hefur hann leikið 49 leiki og skorað í þeim þrettán mörk.

Hann skoraði eitt marka Barcelona gegn Manchester United í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni. Hann fagnaði með því að halda fyrir eyrun á sér.

„Þetta er ekki skot á neinn. Ég virði alla og er þakklátur fyrir stuðninginn. Ég held fyrir eyrun til þess að halda einbeitingunni betur á því sem ég er að gera."

Fyrri leikur liðanna fer fram á Camp Nou í Barcelona þann 1. maí.
Athugasemdir
banner
banner
banner