Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   þri 21. apríl 2026 13:59
Kári Snorrason
City getur fellt Burnley - „Hefur vofað yfir okkur um nokkurt skeið“
Scott Parker.
Scott Parker.
Mynd: EPA
Þótt fall Burnley úr ensku úrvalsdeildinni hafi legið í loftinu gæti það orðið staðfest á morgun tapi liðið fyrir Manchester City.

Burnley situr í 19. sæti deildarinnar með 20 stig, 13 stigum frá West Ham sem er í 17. sæti.

„Varðandi úrslitin á morgun og þá stöðu sem gæti komið upp, þá er það eitthvað sem leikmennirnir hafa líklega verið að takast á við í einhvern tíma,“ sagði Scott Parker, stjóri Burnley, á blaðamannafundi áðan .

„Ég held að þetta sé ekki það sem stýrir okkur mest. Áskorunin síðustu mánuði hefur einfaldlega verið sú að okkur hefur ekki tekist að ná í úrslit. Þetta hefur vofað yfir okkur og sú byrði hefur legið á herðum okkar um nokkurt skeið.“

Spurður hvort liðið gæti sótt aukahvatningu í að hafa áhrif á toppbaráttuna svaraði Parker neitandi.

„Ég held ekki. Það mikilvægasta er að einbeita sér að okkur sjálfum og því sem við gerum. Þetta er mikil áskorun.“
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner