KSÍ vekur athygli á héraðsdómaranámskeiði sem verður haldið þriðjudaginn 26. maí kl. 18:00 í Sókninni, á þriðju hæð í höfuðstöðvum KSÍ. Aðeins 25 manns komast að og verða að fá staðfestingu með tölvupósti til að sitja námskeiðið.
Af vefsíðu KSÍ:
Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara.
Héraðsdómaranámskeiðið veitir dómurum réttindi til að starfa á leikjum í meistaraflokki og mun Egill Arnar Sigurþórsson, Pepsi Max deildar dómari, kenna á námskeiðinu.
Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur. Ekkert próf er, en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis.
Lögð er áhersla á hagnýtar hliðar dómgæslunnar.
Skráning er hafin á [email protected]
Athugasemdir