21.05.22 - 11:31
Fótbolti.net
Útvarpsþátturinn ekki í beinni í dag

Benni Bóas.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Benni Bóas.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður ekki í beinni á X977 þennan laugardaginn þar sem þáttastjórnendur eru uppteknir við að steggja einn af lykilmönnum þáttarins, Benedikt Bóas Hinriksson, drekka í sig sólina og fleira.
Í staðinn er kominn inn sérstakur hlaðvarpsþáttur á veiturnar, og birtist hér á síðunni á slaginu 12, þar sem farið er yfir fréttir vikunnar, rætt um íslenska boltann og hitað upp fyrir lokaumferðina í enska boltanum.

Útvarpsþátturinn snýr svo galvaskur aftur í þráðbeinni eftir viku, eins og venja er alla laugardaga milli 12 og 14.
Bestu kveðjur!

Bestu kveðjur!