24.08.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óskar Hrafn: Nenni ekki lengur að svekkja mig á þessu

Á hliðarlínunni í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Á hliðarlínunni í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
5,85 mörk hafa verið skoruð í 20 deildarleikjum KR á tímabilinu. KR skorar að meðaltali 3,6 mörk að meðaltali í leik og fær á sig 2,25 mörk. Einungis í einum leik á tímabilinu hefur KR mistekist að skora og í einum leik hélt liðið hreinu.
KR hefur skorað flest mörk allra liða í sumar en einungis tvö lið hafa fengið á sig fleiri mörk í deildinni. Gegn KA í gær skoraði KR fimm mörk en fékk á sig þrjú.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður út í varnarleikinn í viðtali eftir leik.

Lestu um leikinn: KA 3 - 5 KR
„Nei, ég nenni ekki lengur að svekkja mig á þessu. Hvað á maður að segja? Við skorum fimm mörk úr (27 skotum) og 14 á markið. Við skorum fimm mörk, hver er ég að vera væla yfir einhverjum varnarleik þegar sóknarleikurinn gengur eins og hann gengur. Ég ætla ekki að dvelja lengi við það, þó auðvitað er þetta hluti af því sem við getum bætt. En ég ætla ekki að einblína á það í dag," sagði Óskar eftir leikinn í gær.
„Nú höfum við níu daga til að undirbúa okkur fyrir leikinn á móti Víkingi. Það er leikur sem við þurfum að mæta í fullir sjálfstrausts og keyra yfir þá," sagði Óskar en Víkingur er á toppi Bestu deildarinnar með átta stigum meira en KR og er eina liðið í sumar sem hefur haldið hreinu gegn KR.
KR tekur á móti Víkingi klukkan 17:15 eftir átta daga.

Óskar Hrafn: Þó Aron gæti verið pabbi Sigga Breka þá eru þetta frábærir leikmenn
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 19 | +13 | 40 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | ÍBV | 20 | -12 | 17 |
| 10 | FH | 19 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 20 | -14 | 16 |
| 12 | Þór | 20 | -30 | 15 |