21.05.26 - 15:53
Kári Snorrason
Amanda nálægt hópnum - Staðan á Selmu metin eftir fimm mánuði

Amanda gekk til liðs við Molde í upphafi árs.

Mynd: Molde

Var frá í fimmtán mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins, valdi Amöndu Andradóttur ekki í landsliðshópinn sem mætir Úkraínu og Spáni í byrjun júní í undankeppni fyrir HM í Brasilíu 2027.
Amanda hefur verið að gera góða hluti með Molde í Noregi síðustu vikur eftir að hafa glímt við meiðsli í upphafi árs.

TENGT EFNI
Landsliðshópurinn - Sveindís valin þrátt fyrir meiðsli
Hún hefur komið inn á sem varamaður í síðustu þremur leikjum liðsins og hefur hún skorað eitt mark og lagt upp tvö til viðbótar í síðustu tveimur leikjum liðsins. Þorsteinn sagði hana þó hafa verið nálægt hópnum.
„Já, hún var það,“ sagði Þorsteinn aðspurður um hvort Amanda hefði verið nálægt hópnum á blaðamannafundi landsliðsins í hádeginu.
Ekkert spilað í fimmtán mánuði
Selma Sól Magnúsdóttir, leikmaður Rosenborg, er að koma til baka eftir langvarandi meiðsli. Hún hefur ekki verið valin í tæpt eitt og hálft ár.
Þorsteinn var spurður um hvort að hún hafi sömuleiðis verið nálægt hópnum.
„Nei, Selma var frá í 15 mánuði þar sem hún spilaði ekkert fótbolta. Hún er að komast í gang. Ég vonast til að næstu fimm mánuðir verði góðir hjá henni og þá gerir hún tilkall til að verða í hópnum í haust,“ sagði Steini.