Fotbolti.net
21.05.26 - 14:57
Kári Snorrason

Leikmenn hljóti að hafa meiri trú - „Verðum að ná þessu sæti“

Auglýsing
Þorsteinn Halldórsson.

Þorsteinn Halldórsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Eimskip
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, opinberaði í hádeginu landsliðshóp fyrir leiki gegn Úkraínu og Spáni í undankeppni HM.

Ísland mætir Úkraínu í Póllandi í fyrri leiknum og tekur svo á móti heimsmeisturum Spánar á Laugardalsvelli.

Fótbolti.net ræddi við Steina á Laugardalsvelli fyrr í dag eftir að hópurinn var tilkynntur.
<b>Landsliðshópurinn -</b> Sveindís valin þrátt fyrir meiðsli
TENGT EFNI

Landsliðshópurinn - Sveindís valin þrátt fyrir meiðsli

„Það er tilhlökkun í mér fyrir þessu verkefni. Við mætum með jákvæðni eftir tvo jákvæða leiki síðast. Við þurfum að bæta aðeins í og gera vel, þá fáum við góð úrslit,“ sagði Steini.

Sigur gegn Úkraínu tryggir Íslandi 3. sæti í undankeppninni sem veitir greiðari leið í umspilinu.

„Við fáum fleiri daga fyrir þennan fyrri leik sem er gegn Úkraínu. Við leggjum allt í það að eiga góðan leik gegn þeim 5. júní. Við gerum allt sem við getum til að uppfylla það.“

„Við losnum við ákveðnar þjóðir í umspilinu (ef við lendum í 3. sæti). Við þurfum að ná þessu sæti og það er það sem við ætlum okkur og stefnum á að gera,“ sagði Þorsteinn.

Aukið sjálfstraust eftir síðasta glugga
Íslandi bíður öðruvísi leikur eftir Úkraínu leikinn er liðið mætir heimsmeisturum Spánar.

„Auðvitað gerum við okkur grein fyrir því að við verðum minna með boltann. Maður verður að sætta sig andlega við það, ekki vera pirra sig á því. Við þurfum að gera vel þegar við vinnum boltann.

Verjast vel, þora að verjast fram á við, ekki falla alveg til baka. Svipað og við gerðum gegn Englandi. Við þurfum að mæta þeim og fara í fæting við þær,“
sagði Steini.

Ísland vann Úkraínu, 1-0, og tapaði naumlega gegn Evrópumeisturum Englands, 0-1, í síðasta glugga. Þorsteinn segir liðið hljóta að koma með aukið sjálfstraust inn í þennan glugga.

„Það hlýtur að vera. Leikmenn hljóta að trúa meira á verkefnið og meira sjálfan sig. Það er ýmislegt hægt ef þú hefur hugrekki til,“ sagði Steini að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.



Gegn Englandi.

Gegn Englandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Liðið vann 1-0 sigur á Úkraínu í síðasta glugga.

Liðið vann 1-0 sigur á Úkraínu í síðasta glugga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Spánn6+1815
2England6+815
3Ísland6-96
4Úkraína6-170
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.