Mohamed Salah verður fyrirliði Egyptalands á HM í sumar en þessi 33 ára leikmaður, sem mun yfirgefa Liverpool í sumar, hefur spilað 115 landsleiki og skorað 67 mörk.
Egyptaland verður með Belgíu, Nýja-Sjálandi og Íran í riðli á HM en mótið fer af stað þann 11. júní.
Opinberaður hefur verið 27 manna hópur en hann verður svo skorinn niður um einn fyrir mótið. Meðal leikmanna sem eru valdir eru Hamza Abdelkarim sem er 18 ára og hefur enn ekki spilað landsleik en hann er hjá U19 liði Barcelona.

Egypski hópurinn:
Markverðir: Mohamed El Shenawy (Al Ahly), Mostafa Shobeir (Al Ahly), El Mahdi Soliman (Zamalek), Mohamed Alaa (El Gouna).
Varnarmenn: Mohamed Hany (Al Ahly), Tarek Alaa (Zed), Hamdy Fathy (Al Wakrah), Rami Rabia (Al Ain), Yasser Ibrahim (Al Ahly), Hossam Abdelmaguid (Zamalek), Mohamed Abdelmonemn (Nice), Ahmed Fatouh (Zamalek), Karim Hafez (Pyramids).
Miðjumenn: Marwan Ateya (Al Ahly), Mohanad Lasheen (Pyramids), Nabil Emad (Al Najma), Mahmoud Saber (Zed), Ahmed Zizo (Al Ahly), Emam Ashour (Al Ahly), Mostafa Ziko (Pyramids), Mahmoud Trezeguet (Al Ahly), Ibrahim Adel (Nordsjælland), Haissem Hassan (Real Ovideo).
Sóknarmenn: Omar Marmoush (Manchester City), Mohamed Salah (Liverpool), Aqtay Abdallah (Enppi), Hamza Abdelkarim (Barcelona).