Fotbolti.net
21.05.26 - 13:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ekki búið að taka lokaákvörðun varðandi Sveindísi

Óvíst hvort Sveindís verði með

Óvíst hvort Sveindís verði með

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Sveindís Jane Jónsdóttir var í dag valin í landsliðshóp fyrir komandi leiki landsliðsins gegn Úkraínu og Spáni í undankeppni HM.

Sveindís glímir við meiðsli á il og er óvíst hvort Sveindís geti tekið þátt í landsleikjunum. Hún hefur misst af síðustu tveimur leikjum Angel City í Bandaríkjunum.

Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson sagði á fréttmannafundi í dag að ákvörðun um hvort hún gæti spilað í landsleikjunum yrði tekin síðar, í lok næstu viku, og telur hann um helmingslíkur á að hún geti verið með landsliðinu. „Við ætlum að bíða og sjá hvernig næsta vika þróast og svo verður tekin endanlega ákvörðun."
<b>Landsliðshópurinn -</b> Sveindís valin þrátt fyrir meiðsli
TENGT EFNI

Landsliðshópurinn - Sveindís valin þrátt fyrir meiðsli

Hópurinn kemur saman eftir aðra helgi. Leikurinn gegn Úkraínu fer fram í Póllandi 5. júní og svo koma Spánverjar í heimsókn á Laugardalsvöll 9. júní.

Leikmenn hljóti að hafa meiri trú - „Verðum að ná þessu sæti“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.