Fotbolti.net
21.05.26 - 21:32
Ívan Guðjón Baldursson

Ivan Toney fer með á HM

Toney hefur skorað eitt mark í sjö A-landsleikjum en hann hefur aðeins spilað í tvær mínútur undir stjórn Thomas Tuchel.

Toney hefur skorað eitt mark í sjö A-landsleikjum en hann hefur aðeins spilað í tvær mínútur undir stjórn Thomas Tuchel.

Canon

Mynd: EPA

Sky Sports heldur því fram að Ivan Toney verði partur af leikmannahópi Englands sem fer á HM í sumar þrátt fyrir að hafa aðeins spilað um tvær landsliðsmínútur á þeim tveimur árum sem Thomas Tuchel hefur verið við stjórnvölinn.
Þrítugur Toney kom með beinum hætti að 53 mörkum í 49 leikjum í öllum keppnum með sádi-arabíska stórveldinu Al-Ahli á tímabilinu.

Tuchel kynnir lokahópinn á morgun en enskir fjölmiðlar virðast vera með furðu mikið af upplýsingum undir höndunum varðandi hverjir fara á lokamótið og hverjir ekki.

Greint hefur verið frá því að Cole Palmer, Phil Foden, Harry Maguire og fleiri sem bjuggust við sæti í lokahópnum séu ekki á leið til Bandaríkjanna. Kobbie Mainoo og Jordan Henderson eru meðal miðjumanna og fer John Stones með þrátt fyrir meiðslavandræði á tímabilinu.

Maguire miður sín - Ekki valinn í HM hópinn
TENGT EFNI

Maguire miður sín - Ekki valinn í HM hópinn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.