21.05.26 - 18:52
Ívan Guðjón Baldursson
Palmer ekki heldur með á HM

Cole Palmer.

Mynd: EPA

Phil Foden.

Mynd: EPA

Cole Palmer.

Mynd: EPA
Sónartengiliðirnir skemmtilegu Phil Foden og Cole Palmer fara ekki með Englandi á heimsmeistaramótið í sumar. BBC greinir frá.

TENGT EFNI
Maguire miður sín - Ekki valinn í HM hópinn
Þá verður enginn Harry Maguire nefndur þegar Thomas Tuchel þjálfari kynnir 26-manna hóp Englands á morgun.
Foden, Palmer og Maguire voru allir í leikmannahópi Englands sem spilaði vináttuleiki við Japan og Úrúgvæ í mars.
33 ára Maguire er búinn að bregðast við fregnunum og segist vera miður sín í færslu á Instagram.
Auk þeirra þriggja mun Luke Shaw einnig missa af tækifærinu til að fara á HM þrátt fyrir að hafa átt mjög gott tímabil með Manchester United. Dan Burn og Nico O'Reilly verða vinstri bakverðirnir.
Þá er talið að miðverðirnir Levi Colwill og Fikayo Tomori fari ekki með á HM svo búist er við að John Stones verði í hópnum þrátt fyrir meiðslahrjáð tímabil.
Nýkrýndir Englandsmeistarar Arsenal munu eiga að minnsta kosti þrjá fulltrúa í hópnum. Noni Madueke, Declan Rice og Bukayo Saka.
Tuchel ætlar að velja Kobbie Mainoo framyfir Adam Wharton og mun Jordan Henderson, sem fagnar 36 ára afmæli á þjóðhátíðardag Íslendinga, vera í lokahópnum.