Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 18:23
Elvar Geir Magnússon
Túnisar skilja reynslubolta eftir heima
Ferjani Sassi er hér fyrir miðju.
Ferjani Sassi er hér fyrir miðju.
Mynd: EPA
Sabri Lamouchi, landsliðsþjálfari Túnis, tilkynnti HM hópinn á dögunum en þar vekur mesta athygli að miðjumaðurinn Ferjani Sassi, sem er 34 ára og hefur leikið 101 landsleik, var ekki valinn. Sassi spilar fyrir Al-Gharafa í Katar.

Auk Sassi er annar reynslubolti skilinn eftir heima, varnarmaðurinn Yassine Meriah sem á 95 landsleiki.

Miðjumaðurinn Rani Khedira, bróðir Sami Khedira sem vann HM 2014 með Þýskalandi, er í hópnum en hann samþykkti fyrr á árinu að spila fyrir Túnis.

Túnis mætir Svíþjóð í sínum fyrsta leik á HM 15. júní. Japan og Holland eru hin liðin í F-riðli.

Landsliðshópur Túnis:

Markverðir: Sabri Ben Hessen (Etoile Sahel), Abdelmouhib Chamakh (Club Africain), Aymen Dahman (CS Sfaxien).

Varnarmenn: Ali Abdi (Nice), Adem Arous (Kasimpasa), Mohamed Amine Ben Hamida (Esperance), Dylan Bronn (Servette Geneva), Raed Chikhaoui (US Monastir), Moutaz Neffati (Norrkoping), Omar Rekik (NK Maribor), Montassar Talbi (Lorient), Yan Valery (Young Boys Berne).

Miðjumenn: Mortadha Ben Ouanes (Kasimpasa), Anis Ben Slimane (Norwich City), Ismael Gharbi (FC Augsburg), Rani Khedira (Union Berlin), Mohamed Hadj Mahmoud (Lugano), Hannibal Mejbri (Burnley), Ellyes Skhiri (Eintracht Frankfurt).

Sóknarmenn: Elias Achouri (FC Copenhagen), Khalil Ayari (Paris St Germain), Firas Chaouat (Club Africain), Rayan Elloumi (Vancouver Whitecaps), Hazem Mastouri (Dynamo Makhachkala), Elias Saad (Hannover 96), Sebastian Tounekti (Celtic).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner