Fotbolti.net
21.05.26 - 17:30
Kári Snorrason

Úlfur sleit liðband - Styttist í Ísak og Sverri

Úlfur var borinn af velli.

Úlfur var borinn af velli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úlfur Ágúst Björnsson var borinn af velli í leik gegn Breiðabliki á dögunum. Í ljós hefur komið að Úlfur sleit liðband í ökkla og er hann byrjaður í endurhæfingu.

Þetta kemur fram í færslu FH á samfélagsmiðlum þar sem Númi Már Atlason, sjúkraþjálfari FH, fer yfir stöðuna á meiðslalistanum.

Þar kemur jafnframt fram að þeir Ísak Óli Ólafsson og Sverrir Páll Hjaltested séu báðir að snúa til baka eftir að hafa skollið saman og fengið heilahristing. Þeir eru byrjaðir að æfa með snertingu.
Jákvæðar fréttir af Úlfi sem borinn var af velli
TENGT EFNI

Jákvæðar fréttir af Úlfi sem borinn var af velli

Birkir Valur Jónsson hefur verið að glíma við hnémeiðsli og var því ekki með gegn KA. Þá hefur Adolf Daði Birgisson verið meiddur í aftanverðu læri en Númi býst við honum sem fyrst.

Óttar Uni Steinbjörnsson, nítján ára varnarmaður, hefur verið lengi frá vegna meiðsla í mjöðm. Búist er við að hann komi til baka á næsta ári.

Þá er Aron Daði Svavarsson, sautján ára sóknarmaður, að snúa til baka eftir viðbeinsbrot.
Svakalegt högg og tveir FH-ingar saumaðir - Frá næstu vikurnar
TENGT EFNI

Svakalegt högg og tveir FH-ingar saumaðir - Frá næstu vikurnar





Ísak er að snúa til baka eftir höfuðhögg.

Ísak er að snúa til baka eftir höfuðhögg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.