Fotbolti.net
21.05.26 - 16:04
Elvar Geir Magnússon

Wan-Bissaka með Kongó á HM

Aaron Wan-Bissaka í leik með Kongó.

Aaron Wan-Bissaka í leik með Kongó.

Canon

Mynd: EPA

Lýðstjórnarlýðveldið Kongó opinberaði í vikunni landsliðshóp sinn fyrir HM í sumar.

Aaron Wan-Bissaka, varnarmaður West Ham, og Yoane Wissa, sóknarmaður Newcastle, eru meðal leikmanna í hópnum.

Wan-Bissaka fæddist í London og lék fyrir yngri landslið Englands. Í ágúst í fyrra skipti hann í Kongó og hefur síðan leikið níu landsleiki.
Kongó færir æfingabúðir sínar fyrir HM vegna ebólufaraldurs
TENGT EFNI

Kongó færir æfingabúðir sínar fyrir HM vegna ebólufaraldurs

Kongó er í K-riðli á HM ásamt Portúgal, Kólumbíu og Úsbekistan.

Landið var þekkt sem Saír þegar það tók síðast þátt í HM, 1974, en þá tapaði það öllum sínum leikjum. Þar á meðal 9-0 gegn Vestur-Þýskalandi.

HM hópur Kongó:

Markverðir: Matthieu Epolo (Standard Liege), Timothy Fayulu (Noah), Lionel Mpasi (Le Havre).

Varnarmenn: Dylan Batubinsika (Larisa), Gedoon Kalulu (Aris Limassol), Steve Kapuadi (Widzew Lodz), Joris Kayembe (Racing Genk), Arthur Masuaku (Racing Lens), Chancel Mbemba (Lille), Axel Tuanzebe (Burnley), Aaron Wan-Bissaka (West Ham United).

Miðjumenn: Theo Bongonda (Spartak Moscow), Brian Cipenga (Castellon), Meshack Elia (Alanyaspor), Gael Kakuta (Larisa), Edo Kayembe (Watford), Nathanael Mbuku (Montpellier), Samuel Moutoussamy (Atromitos), Ngal'ayel Mukau (Lille), Charles Pickel (Espanyol), Noah Sadiki (Sunderland), Aaron Tshibola (Kilmarnock).

Sóknarmenn: Cedric Bakambu (Real Betis), Simon Banza (Al Jazira), Fiston Mayele (Pyramids), Yoane Wissa (Newcastle United).
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.