Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 16:23
Elvar Geir Magnússon
Zaha ekki valinn í HM hóp Fílabeinsstrandarinnar
Wilfried Zaha.
Wilfried Zaha.
Mynd: Charlotte FC
Mynd: EPA
Wilfried Zaha, fyrrum sóknarleikmaður Crystal Palace, var ekki valinn í HM hóp Fílabeinsstrandarinnar.

Þessi 33 ára leikmaður var með liðinu í Afríkukeppninni en Emerse Fae landsliðsþjálfari ætlar að treysta á aðra leikmenn á HM í sumar. Zaha spilar fyrir bandaríska liðið Charlotte FC, á láni frá Galatasaray.

Hér að neðan má sjá landsliðshóp Fílabeinsstrandarinnar fyrir HM en meðal fjögurra leikmanna úr ensku úrvalsdeildinni er Amad Diallo hjá Manchester United.

Fílabeinsströndin verður í E-riðli í sumar, ásamt Þýskalandi, Ekvador og Curacao.

Markverðir: Yahia Fofana (Rizespor), Mohamed Kone (Charleroi), Alban Lafont (Panathinaikos).

Varnarmenn: Emmanuel Agbadou (Wolverhampton Wanderers), Clement Akpa (AJ Auxerre), Ousmane Diomande (Sporting), Guela Doue (Racing Strasbourg), Ghislain Konan (Gil Vicente), Odilon Kossonou (Atalanta), Evan Ndicka (AS Roma), Wilfried Singo (Galatasaray).

Miðjumenn: Seko Fofana (Stade Rennais), Parfait Guiagon (Charleroi), Franck Kessie (Al Ahli), Christ Oulai (Trabzonspor), Ibrahim Sangare (Nottingham Forest), Jean-Michael Seri (NK Maribor).

Sóknarmenn: Simon Adingra (Mónakó), Ange-Yoan Bonny (Inter Milan), Amad Diallo (Manchester United), Oumar Diakite (Cercle Brugge), Yan Diomande (RB Leipzig), Evann Guessand (Aston Villa), Nicolas Pepe (Villarreal), Bazoumana Toure (Hoffenheim), Elye Wahi (Nice).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner