21.06.16 - 19:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alvaro Morata aftur til Real Madrid (Staðfest)

Morata er mættur aftur til Real Madrid

Mynd: Getty Images

Morata er mættur aftur til Real Madrid

Mynd: Getty Images
Spænska stórveldið Real Madrid hefur nýtt sér klásúlu í samningi Alvaro Morata og er búið að kaupa hann aftur til félagsins frá Juventus.
Gert var samkomulag um það þegar Morata var seldur til Juventus að Real gæti alltaf keypt hann aftur fyrir það sem nemur 23 milljónum punda. Real hefur nú ákveðið að nýta sér það og borgað upphæðina.
Hinn 23 ára gamli Morata hefur spilað gríðarlega vel á EM í Frakklandi og vakið athygli. Hann mun nú snúa aftur til Real Madrid eftir að hafa spilað með Juventus frá 2014.
Morata hefur skorað tvö mörk á Evrópumótinu, en hann hafði verið orðaður við ensku liðin Arsenal og Chelsea.
Hann skoraði 27 mörk á tveimur tímabilum með Juventus og vann Seríu A tvisvar og ítalska bikarinn tvisvar.
Hann mun koma aftur til Real Madrid sem sterkari leikmaður og spurning hvað verður um Karim Benzema, en gert er ráð fyrir því að Morata verði sóknarmaður númer eitt hjá Real á næsta tímabili.