21.06.16 - 20:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
El Shaarawy keyptur til Roma (Staðfest)

El Shaarawy er genginn til liðs við Roma

Mynd: Getty Images

Roma er búið að kaupa vængmanninn öfluga Stephan El Shaarwy frá AC Milan.
El Shaarawy hafði verið orðaður við lið í ensku úrvalsdeildinni, en hann hefur ákveðið að vera áfram á Ítalíu og semja við Roma.
Leikmaðurinn er í augnablikinu með Ítölum á EM, en hann var í láni hjá Roma, seinni part tímabilsins sem var að líða.
Hann stóð sig vel hjá Roma og félagið ákvað að nýta sér forkaupsrétt upp á 10 milljónir punda.
Hann var eitt sinn talin ein bjartasta vonin í fótboltanum, en meiðsli settu strik í reikninginn. Hann átti góða tíma með Roma á síðasta tímabili og spennandi verður að sjá hvort hann nái að slá í gegn á nýjan leik.