Mason Mount og Ben Chilwell verður haldið frá restina af enska landsliðshópnum eins og sakir standa.
Tekin var ákvörðun um það í dag eftir að Billy Gilmour, landsliðsmaður Skota, greindist með Covid-19 eftir leik Englands og Skotlands á föstudag.
Tekin var ákvörðun um það í dag eftir að Billy Gilmour, landsliðsmaður Skota, greindist með Covid-19 eftir leik Englands og Skotlands á föstudag.
Enski landsliðshópurinn fór allur í skimun eftir leik og í niðurstöðum dagsins kom í ljós að enginn væri smitaður.
Þar sem Chilwell og Mount voru í mikilli nánd við Gilmour eftir leikinn var ákveðið að taka enga sénsa og verða þeir því ekki í sömu rýmum og restin af landsliðshópnum.
Þeir Mount, Chilwell og Gilmour leika allir með Chelsea. Gilmour átti stjörnuleik í leiknum á föstudag.
— No Context EUROs (@NoContextEUR0) June 21, 2021
Athugasemdir