Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 21. júní 2021 12:32
Elvar Geir Magnússon
Óli Jó snýr aftur til FH (Staðfest)
Ólafur Jóhannesson er tekinn við FH.
Ólafur Jóhannesson er tekinn við FH.
Mynd: FH
Ólafur Jóhannesson hefur verið tilkynntur sem nýr þjálfari FH en leiðir félagsins og Loga Ólafssonar skildu í morgun.

Ólaf þarf ekki að kynna fyrir FH-ingum en þetta er í fjórða sinn sem hann tekur við liðinu.

Hans fyrsti leikur með FH er bikarleikur gegn Njarðvík á miðvikudaginn en liðið mætir KA í Pepsi Max-deildinni á sunnudaginn.

Davíð Þór Viðarsson, sem var aðstoðarmaður Loga, heldur áfram í starfi sínu sem aðstoðarþjálfari.

Yfirlýsing FH:
Ólafur Jóhannesson sem stýrði FH til fyrsta Íslandsmeistaratitils félagsins, og vann fjóra titla með FH liðið frá 2003-2007 tekur við FH ásamt Davíð Þór.

Óli tekur við FH í fjórða sinn en hann kvaddi með fyrsta bikarmeistaratitli félagsins árið 2007 til að taka við íslenska landsliðinu.

Mikilvægir leikir eru framundan hjá FH í bikar, deild og Evrópu og hvetjum við stuðningsmenn liðsins að styðja við bakið á FH liðinu á næstu mánuðum.
Athugasemdir
banner
banner