Fotbolti.net
21.06.26 - 21:45
Viktor Ingi Valgarðsson

Venni ánægður að menn hengdu ekki haus og gleðst innkoma Adams Árna

Auglýsing
Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar

Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Þróttarar halda sigurgöngu sinni áfram með 3-1 sigri á Ægir á GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn í dag.

Liðið var á toppi Lengjudeildarinnar fyrir leikina í kvöld og halda því sæti fyrir næstu umferð. Þetta var einnig fjórði sigur Þróttar í röð en endurkomu sigur var það í þetta skipti.

Lestu um leikinn: Ægir 1 - 3 Þróttur R.

„Mjög ánægður að ná í þessi þrjú stig, þetta var mjög erfitt og þolinmæðis vinna. Ég er ánægður með karakterinn í strákunum að halda haus þrátt fyrir að vera eitt núll undir í hálfleik og stemningin með Ægismönnum."

Eins og Venni talar um þá var Þróttur 1-0 undir í hálfleik og aðspurður hver orð hans voru í hálfleik sagði Sigurvin Ólafsson (Venni): „Í raun sagði ég bara að við þyrftum að vera aðeins jákvæðnari og láta ekki stöðutöfluna trufla. Ég sá enga ástæðu til að breyta einhverju hjá okkur við vorum að stýra leiknum algjörlega. Bað þá um að ekki hengja haus eða svekkja sig á hvernig staðan er, bara trúa að þessi spilamennska muni skila okkur árangsríkum seinni hálfleik."

Það var jú sagan en eftir vítaspyrnumark Sigurðs Egil Lárussonar var nokkuð ljóst hvernig þessi leikur myndi fara. 

Innkoma Adams Árna Róbertsson var frábær í dag. Rölti inná í miðri hornspyrnu og gerði sér lítið fyrir og skoraði með flottum skalla. Hans fyrsta snerting í Lengjudeildinni með Þrótti endaði í netinu. „Þetta er markaskorari mikill. Það var æðislegt fyrir hann, þetta er auðvitað búið að vera erfitt og leiðinlegt fyrir okkur að fá hann í liðið og hann hefur ekkert getað spilað. Hann náttúrulega búin að vera súr og svekktur að missa af þessum 8 eða 10 vikum. Gleðst innilega fyrir hans hönd að vera kominn inná völl og auðvitað frábært að hann skorar þetta lykilmark."

Næst hjá Þrótti er leikur gegn Vestra og um það verkefni hafði Venni þetta að segja: „Verður öðruvísi leikur, gervigras og heima hjá okkur. Það er toppslagur, frábært lið sem að við þurfum að taka alvarlega. Þeir eru búnir að vinna fullt að leikjum upp á síðkastið."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.