Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 21. júlí 2019 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pochettino vildi ekki útiloka að fá Bale
Bale var í Tottenham áður en hann fór til Real Madrid.
Bale var í Tottenham áður en hann fór til Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, vill ekki útiloka það að fá Gareth Bale aftur til félagsins.

Bale lék með Tottenham áður en hann fór til Real Madrid 2013. Krafta hans er ekki lengur óskað hjá Real Madrid. Zinedine Zidane vill hinn þrítuga Bale burt.

Eftir 3-2 sigur Tottenham á Juventus í æfingaleik í dag var Pochettino spurður út í Bale.

„Ég veit ekki í hvaða félag hann er að fara. Ég veit ekki hvort hann komi til okkar eða fari í eitthvað annað félag. Það er hlutverk stjórnarformannsins að byggja upp besta mögulega félagið hérna."

Bale hefur verið orðaður við Manchester United og Tottenham, Bayern München og kínversku Ofurdeildina. Þó hefur einnig verið talað um að erfitt sé að koma honum í nýtt félag, bæði vegna þess að hann vill vera áfram í Madríd og vegna þess hversu há launin hans eru.
Athugasemdir
banner
banner
banner