Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 21. júlí 2019 18:01
Arnar Helgi Magnússon
Rússland: Viðar beint í byrjunarliðið - Tekinn útaf í hálfleik
Mynd: Eyþór Árnason
Viðar Örn Kjartansson spilaði sinn fyrsta leik fyrir Rubin Kazan þegar liðið sigraði Dinamo Moskvu í rússnesku úrvalsdeildinni í kvöld.

Viðar var í byrjunarliði Rubin en var tekinn útaf í hálfleik.

Evgeny Bashkirov, leikmaður Rubin Kazan, fékk að líta rautt spjald í fyrri hálfleik og þurfti þjálfari liðsins að gera taktíska breytingu í hálfleik og það kom í hlut Viðars að vera tekinn af velli.

Þrátt fyrir að vera manni færri náði Rubin Kazan að pota inn sigurmarki í uppbótartíma og lokatölur því 0-1. Liðið situr í fimmta sæti deildarinnar með fjögur stig eftir tvo leiki.

Næsti leikur Rubin Kazan er mánudaginn 29. júlí gegn Akhmat Grozny.
Athugasemdir
banner
banner
banner