Mjólkurbikarinn: Afturelding í úrslit í fyrsta sinn - Sjáðu það helsta

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fylkir 1 - 1 Afturelding (3-4 í vítaspynukeppni)
1-0 Tumi Fannar Gunnarsson ('47 )
1-1 Hlynur Sævar Jónsson ('64 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn

Afturelding er komið í úrslit Mjólkurbikarsins í fyrsta sinn eftir sigur á Fylki eftir vítaspyrnukeppni.
Theodór Ingi Óskarsson komst í dauðafæri eftir tæplega hálftíma leik en Arnar Daði Jóhannesson sá við honum. Stuttu síðar átti Eyþór Aron Wöhler skalla rétt framhjá.
Fylkismenn náðu forystunni snemma í seinni hálfleik þegar Tumi Fannar Gunnarsson skoraði eftir samspil við Theodór.
Afturelding jafnaði metin þegar Hlynur Sævar Jónsson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Leikurinn fór í framlengingu þar sem Elmar Kári Enesson Cogic var nálægt því að tryggja Aftureldingu sigurinn en Ólafur Kristófer Helgason varði frá honum. Það þurfti því að grípa til vítaspyrnukeppni.
Afturelding skoraði úr fyrstu tveimur spyrnunum en Arnar Daði varði aðra spyrnu Fylkis frá Arnóri Breka Ásþórssyni. Afturelding komst í 3-2 en klikkuðu á næstu tveimur spyrnum. Fylkir jafnaði metin, Axel Óskar Andrésson kom Aftureldingu í 4-3 og Arnar Daði var hetjan og varði síðustu spyrnuna frá Degi Traustasyni.
Afturelding mætir Breiðabliki í úrslitum á Laugardalsvelli 11. september.