Fotbolti.net
21.08.15 - 20:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

3. deild: Magni upp í 2. deild (Staðfest)

Magni mun spila í 2. deild á næsta tímabili

Magni mun spila í 2. deild á næsta tímabili

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þrír leikir voru spilaðir í 3. deild karla í kvöld og bar það hæst að Magni tryggði sæti sitt í 2. deild á næsta tímabili með sigri á Kára.

Magni vann 1-0 sigur á Kára, en eina mark leiksins skoraði Lars Óli Jessen eftir tveggja mínútna leik.

Magni er búinn að eiga ótrúlegt tímabil, en liðið hefur ekki enn tapað og er með örugga forystu á toppi deildarinnar. Kári er í fjórða sæti með 23 stig.

Víðir vann svo góðan sigur á Berserkjum, en Milan Tasic skoraði tvennu fyrir heimamenn.

Víðir er í sjöunda sæti með 17 stig, en Berserkir eru í níunda sæti með 13 stig.

Svo gerðu Álftanes og Reynir S. jafntefli, en Reynir S. kom tilbaka eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.

Reynir S. er í öðru sæti með 30 stig, en Álftanes er á botni deildarinnar með sjö stig.
Kári 0-1 Magni
0-1 Lars Óli Jessen (\'2)

Víðir 3-1 Berserkir
0-1 Sjálfsmark (\'22)
1-1 Milan Tasic (\'24)
2-1 Milan Tasic (\'37)
3-1 Aleksandar Stojkovic (\'90)

Álftanes 2-2 Reynir S.
1-0 Jón Brynjar Jónsson (\'40)
2-0 Ronnarong Wongmahadthai (\'45)
2-1 Pétur Þór Jaidee (\'72)
2-2 Hafsteinn Rúnar Helgason (\'75)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.