21.08.15 - 22:08
Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Már tekur við kvennaliði Fjölnis (Staðfest)

Gunnar Már og Kristján Einarsson formaður knattspyrnudeildar Fjölnis samninginn.

Mynd: Aðsend

Fjölnir hefur gert þjálfaraskipti í kvennaliði félagsins en Sigurður Víðisson er hættur með liðið og nýr þjálfari er Gunnar Már Guðmundsson.
Gunnar Már þekkja allir undir viðurnefninu Herra Fjölnir en hann spilar með karlaliði félagsins og fór með því upp allar deildir.
Gunnar Már gerir þriggja ára samning um þjálfun liðsins en þetta kom fram í tilkynningu félagsins í kvöld.
„Gunnar ,sem lokið hefur UEFA A þjálfaragráðu, hefur undanfarin ár komið að þjálfun yngri flokka Fjölnis ásamt því að vera einn farsælasti leikmaður meistaraflokks karlam,\" sagði í tilkynningunni.
Liðið endaði í sjötta sæti B-riðili 1. deildar kvenna í sumar en sjö lið eru í riðlinum.