21.08.15 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Sami Hyypia tekur við FC Zurich (Staðfest)

Mynd: Fram

Mynd: Fram
Sami Hyypia, fyrrum fyrirliði Liverpool, hefur verið ráðinn þjálfari FC Zurich í Sviss.
Hyypia var síðast stjóri hjá Brighton & Hove Albion í ensku Championship deildinni en hann entist einungis nokkra mánuði í starfi þar.
Þar áður þjálfaði Hyypia lið Bayer Leverkusen í Þýskalandi frá 2012 til 2014.
Sem leikmaður spilaði Hyypia með Liverpool við góðan orðstír frá 1999 til 2009.
Zurich er í sjöunda sæti í svissnesku úrvalsdeildinni eftir fimm umferðir.