Fotbolti.net
21.08.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Emery: Staða hans er ákveðið vandamál

Emery: Staða hans er ákveðið vandamál
Canon

Mynd: EPA

Unai Emery, stjóri Aston Villa, viðurkenndi að félagið væri að glíma við vandamál þegar hann ræddi um áhuga Al-Hilal í Sádi-Arabíu á Ollie Watkins.

Al-Hilal bauð í enska landsliðsframherjann en Villa hafnaði 38,5 milljóna punda tilboði.

Viðræður milli félaganna halda áfram og er sagt að Watkins sé tilbúinn að fara til Sádi. Ef hann fer þá þarf Villa að fá inn mann í staðinn.
Watkins með samkomulag við Al-Hilal
TENGT EFNI

Watkins með samkomulag við Al-Hilal

„Þetta er vandamál fyrir okkur, það er klárt. Við höfum fengið tilboð í hann en hann er okkar leikmaður. Ég vil ekki selja hann en það getur breyst ef þeta er góður kostur fyrir hann og ef ég og félagið getum fengið mann sem fyllir í hans skarð."

„Hann er hér og er frábær framherji. Við höfum alltaf haft trú á honum og stutt hann."

„Það eru tíu dagar í lok gluggans, við sjáum hvað gerist. Hann er okkar leikmaður og ég er ánægður með hann,"
segir Watkins.

Líkur eru á því að Nicolas Jackson komi frá Chelsea ef Watkins fer til Sádi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.