Fotbolti.net
21.08.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Disasi fer til Palace

Disasi fer til Palace
Canon

Mynd: EPA

Crystal Palace er að nálgast samkomulag við Chelsea um að fá miðvörðinn Axel Disasi á láni. Palace mun greiða laun Disasi og lánsfé til Chelsea.

Palace er í leit að miðverði eftir að Maxence Lacroix var keyptur til Chelsea.

„Við þurfum mann í þá stöðu, leikmann sem býr yfir mikilli reynslu og reynslu úr úrvalsdeildinni ef mögulegt er."

„Við þurfum leikmenn, en við þurfum leiðtoga og þess vegna erum við að bíða eftir að finna góðan mann í þessa stöðu,"
sagði Pierre Sage, stjóri Palace, um stöðu mála í gær.
Hann var svo spurður beint út í Disasi.

„Hann er leikmaður Chelsea, það er erfitt fyrir mig að ræða um leikmann annars feálgs, en ég heyri sömu hljóð og þið," sagði Sage um sögusagnirnar.

Disasi er 28 ára Frakki sem Chelsea keypti frá Mónakó 2023. Hann var á láni hjá West Ham seinni hluta síðasta tímabils.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.