Fotbolti.net
21.08.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Iraola: Erum ekki með nógu marga vængmenn

Andoni Iraola tók við Liverpool í sumar.

Andoni Iraola tók við Liverpool í sumar.

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, gaf á fréttamannafundi í dag sterklega í skyn að félagið myndi fá inn fleiri leikmenn fyrir gluggalok.

Hann segir að það séu ekki nægilega margir vængmenn í hópnum. Cody Gakpo er orðaður í burtu og þeir Endrick, Bradley Barcola, Ibrahim Mbaye og Yankuba Minteh hafa verið orðaðir við félagið.
„Þið vitið að við getum ekki tjáð okkur um leikmenn sem eru ekki í okkar félagi. Ég skil spurningarnar," sagði Iraola sem var einnig spurður út í Curtis Jones sem er á leið til Inter.

„Varðandi Jones þá er það í gangi. Ég ræddi við hann þegar við byrjuðum í sumar, met hans mikils, hann elskar félagið og það er á hreinu."

„En ég skildi að útkoman verður eins og hún verður að lokum. Hvað við þurfum? Það er augljóst með sumt, sérstaklega á vængnum, við erum ekki með nægilega marga leikmenn þar."

„Varðandi aðrar stöður erum við með opinn hug varðandi hvað getur gerst á markaðnum og getur styrkt okkar lið. Við erum með góða leikmenn þegar til staðar, svo við þurfum að fá mjög góða leikmenn til að styrkja liðið,"
segir Iraola.

Liverpool er með þá Federico Chiesa, Cody Gakpo, Victor Munoz og Rio Ngumoha sem kosti á vængnum. Auk þeirra gætu þeir Florian Wirtz, Harvey Elliot og Jeremie Frimpong leyst hlutverk á vængjunum.

Liverpool byrjar tímabilið á útivelli gegn Newcastle á sunnudag.
Barcola hefur verið orðaður við Liverpool.

Barcola hefur verið orðaður við Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.