Fotbolti.net
21.08.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hürzeler: Það er eina ástæðan fyrir því að Baleba mun ekki spila

Hürzeler: Það er eina ástæðan fyrir því að Baleba mun ekki spila
Canon

Mynd: EPA

Carlos Baleba, leikmaður Brighton, er skotmark Manchester United á markaðnum.

Fabian Hürzeler, stjóri Brighton, sat fyrir svörum á fréttamannafundi sem haldinn var fyrir leikinn gegn Aston Villa, en sá leikur fer fram á sunnudag og er liður í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Baleba nálgast Man Utd - Höfnuðu fyrsta tilboði
TENGT EFNI

Baleba nálgast Man Utd - Höfnuðu fyrsta tilboði

„Carlos Baleba er leikmaður Brighton. Ég tjái mig aldrei um sögusagnir sem eru í fjölmiðlum. Ég get ekki stýrt þeim - það er mikið skrifað."

„Ég veit hvað er í gangi en ég er með mjög mikilvægan leik fyrir höndum. Á honum er einbeiting mín öll þessa stundina."

„Hann er ekki heill heilsu. Þess vegna verður hann ekki með í leiknum,"
segir Hürzeler.

Er það eina ástæðan? „Á þessum tímapunkti, já."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.