Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
   lau 21. september 2019 17:02
Ívan Guðjón Baldursson
Dean Martin býst við að halda áfram með Selfoss
Mynd: Heimasíða Selfoss
Selfoss vann sinn sjöunda leik í röð í 2. deildinni í dag en það dugði ekki til að komast aftur upp í Inkasso-deildina. Toppliðin tvö, Vestri og Leiknir F., unnu bæði í dag.

Dean Martin, þjálfari Selfyssinga, segist ánægður með sumarið þrátt fyrir að liðið hafi ekki komist upp um deild.

„Við spiluðum mjög vel í dag, mjög flott að halda hreinu. Við erum búnir að spila virkilega vel síðustu sjö leiki og búnir að vinna þá alla," sagði Dean að leikslokum.

„Ég er mjög sáttur með sumarið. Þetta er ungur og skemmtilegur hópur með marga mjög efnilega leikmenn. Fyrir mér er þetta ekki slæmt tímabil, leikmennirnir eru búnir að þroskast helling og búnir að læra af mistökum."

Dean segist gera ráð fyrir því að halda áfram með Selfoss næsta sumar. Hann veit ekki hversu mikið af leikmannahópnum mun vera áfram og vonast til að halda Hrvoje Tokic sem gerði 22 mörk í sumar.
Athugasemdir
banner