Fotbolti.net
21.09.19 - 17:45
Ívan Guðjón Baldursson

Guardiola: Eins og fólk skilji ekki að við getum tapað

Guardiola: Eins og fólk skilji ekki að við getum tapað
Canon

Mynd: Getty Images

Josep Guardiola var kátur eftir 8-0 sigur Manchester City gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Eftir leikinn gagnrýndi hann fjölmiðla fyrir umfjöllunina eftir 3-1 tap gegn Norwich um síðustu helgi.

„Haldið þið að þessir leikmenn þurfi ennþá að sanna eitthvað eftir að hafa unnið úrvalsdeildina tvö ár í röð? Það er eins og fólk skilji ekki að við getum líka tapað leikjum," sagði Guardiola.

„Ég er hissa að fyrrum atvinnumenn sem eru knattspyrnusérfræðingar í dag skilji þetta ekki. Við getum tapað leikjum eins og öll önnur lið, það er undir okkur komið að sanna fyrir sjálfum okkur að við höfum ennþá metnaðinn til að vinna titla."

Bernardo Silva fékk mikið lof að leikslokum enda skoraði hann þrennu í stórsigrinum.

„Bernardo Silva var besti leikmaðurinn okkar á síðustu leiktíð. Hann þarf ekki að skora hérna til að sanna að hann sé góður leikmaður."

Man City er í öðru sæti deildarinnar, með þrettán stig eftir sex umferðir. Liverpool er á toppinum og getur aukið forystuna í fimm stig með sigri á morgun.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.