Fotbolti.net
21.09.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bale segir Mourinho vera stóra ástæðu fyrir endurkomunni

Bale er mættur aftur.

Bale er mættur aftur.

Canon

Mynd: Getty Images

Gareth Bale segir að Jose Mourinho sé stór ástæða fyrir því að hann ákvað að koma aftur í Tottenham.
Bale er kominn aftur til Tottenham eftir sjö ára veru í Real Madrid. Hann kemur á láni út tímabilið.

Hinn 31 árs gamli Bale hlakkar til að spila með Harry Kane og Son Heung-min þegar hann snýr aftur til baka eftir meiðsli í október.

„Hann (Mourinho) talaði við mig um nokkrar stöður þar sem hann vill að ég spili og ég er augljóslega mjög ánægður með það," sagði Bale við BT Sport.

„Hann er stór ástæða fyrir því að ég ákvað að koma til baka, hann er stórt nafn í fótbolta og sigurvegari. Hann er fullkominn fyrir Tottenham. Við þurfum að vinna titla og hann veit hvernig á að gera það, betur en nokkur annar."

Sjá einnig:
Bale: Ég er hungraður og metnaðarfullur
Jose Mourinho.

Jose Mourinho.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.