Valur og Slavía Prag mætast í fyrri leik liðanna í forkeppni í Meistaradeildar kvenna á Origo-vellinum í kvöld. Sigurvegarinn úr einvíginu fer í riðlakeppnina.
Valsliðið vann Hayesa og svo Shelbourne á leið sinni í síðustu umferð í forkeppninni.
Liðið mætir nú Slavía Prag frá Tékklandi en fyrri leikurinn er klukkan 17:00 á Origo-vellinum á Hlíðarenda í kvöld.
Síðari leikurinn fer fram í Prag eftir viku. Breiðablik er eina liðið til að spila í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en liðið náði þeim merka áfanga á síðasta ári.
Leikur dagsins:
Meistaradeild kvenna
17:00 Valur-Slavia Prag (Origo völlurinn)
Athugasemdir