Varnarmaðurinn Pepe spilaði gegn Manchester City með Porto í Meistaradeildinni í kvöld.
Pepe fékk á sig vítaspyrnu í leiknum sem Sergio Aguero skoraði úr fyrir Man City.
Hinn 37 ára gamli Pepe, sem lék áður fyrr með Real Madrid, var orðinn ansi pirraður undir lokin þegar staðan var 3-1 fyrir heimamenn í City. Hann lét Raheem Sterling heyra það eftir að honum fannst Englendingurinn fara heldur auðveldlega niður í jörðina.
Pepe hellti sér yfir Sterling og rak svo hnéð í enska landsliðsmanninn sem var í jörðinni.
Pepe hefur í gegnum tíðina verið þekktur fyrir það að fara stundum yfir strikið á fótboltavellinum.
😭😭 pic.twitter.com/Wbiqbc6Zrt https://t.co/BbiHB0Z7rn
— . (@shadadzai) October 21, 2020
Pepe gonna Pepe 🤪#UCL pic.twitter.com/fknyHTCWca
— Goal (@goal) October 21, 2020
Athugasemdir