21.10.26 - 22:26
Brynjar Ingi Erluson
Kompany á batavegi - „Hlustaði ekki á líkamann“

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Belgíski þjálfarinn Vincent Kompany er á batavegi eftir að hafa glímt við veirusýkingu, en hann var mættur á hliðarlínuna þegar Bayern München gerði 2-2 jafntefli við Arsenal í Meistaradeildinni í kvöld.

TENGT EFNI
Kompany með veirusýkingu
Mikil spenna var í leiknum þar sem Arsenal byrjaði betur og náði snemma yfirhöndinni, en Bæjarar unnu sig smám saman inn í leikinn, jöfnuðu metin og komust síðan yfir.
Arsenal tókst hins vegar að jafna undir lokin og var jafnvel nálægt því að stela sigrinum, en þegar upp var staðið fannst Kompany jafnteflið sanngjörn úrslit.
„Við erum komnir inn í tímabil þar sem leikirnir koma þétt og við erum strax farnir að hlakka til þess næsta. Við mættum mjög sterkum andstæðingi í dag, en áttum okkar góðu kafla og sköpuðum nokkur dauðafæri sem ég hafði jafnvel ekki búist við að við myndum ná að skapa.“
„Það er svekkjandi að við skyldum missa dampinn á síðustu mínútunum því við hefðum alveg getað unnið þennan leik. En við megum ekki gleyma því hversu erfitt það er að mæta Arsenal. Leikurinn er aldrei búinn gegn þeim. Þetta var hörkuleikur, strákarnir gáfu allt sem þeir áttu og þegar upp er staðið eru úrslitin líklega sanngjörn.“
Harry Kane skoraði síðara mark Bayern og Kompany fór fögrum orðum um framherjann, sem hann telur eiga Ballon d'Or verðlaunin skilið.
„Nú þegar kosningunni er lokið þarf ég ekki lengur að fara varlega í orðavalið eða reyna að vera diplómatískur. Það sem hefur glatt Harry mest á undanförnum árum er að hann er loksins farinn að vinna titla. Ef honum tekst að kóróna ferilinn með Ballon d'Or á þessu tímabili væri það fullkomlega verðskuldað miðað við það sem hann hefur sýnt með liðinu.“
Óvíst var hvort Kompany gæti stýrt Bayern í kvöld þar sem hann hefur glímt við sýkingu í fæti, en hann er nú á batavegi.
„Mér líður betur og þetta er eitthvað sem getur komið fyrir hvern sem er. Sem þjálfari vill maður alltaf gera allt sjálfur og ég hlustaði ekki á líkamann. Á endanum sagði hann einfaldlega: 'Nú er komið nóg!'.Þannig var það bara, en mér líður mun betur núna. Annars væri ég ekki hér,“ sagði Kompany.