Fotbolti.net
21.10.26 - 07:20
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild

Margir leikmenn Man Utd fjarverandi

Lisandro verður ekki með

Lisandro verður ekki með

Canon

Mynd: EPA

Manchester United verður án fjölmargra leikmanna gegn Como í Meistaradeildinni í kvöld, en Michael Carrick, stjóri félagsins, fór yfir stöðuna á leikmannahópnum í gær.
United er að glíma við mikil meiðslavandræði en Luke Shaw, Marcus Rashford, Kobbie Mainoo, Benjamin Sesko, Patrick Dorgu og Lisandro Martínez eru allir á sjúkralistanum. Þá hefur Ayden Heaven einnig verið frá vegna veikinda.

„Meiðsli Martínez eru ekki svo alvarleg en hann er ekki með okkur. Kobbie verður frá í tíu daga í viðbót og Luke aðeins lengur en það. Það eru líka einhver veikindi í hópnum og Ayden er veikur. Marcus er svo enn að glíma við vandamál í mjöðminni sem við erum að reyna að finna lausn á,“ sagði Carrick.

Carrick vonast einnig til að fá skýrari mynd af meiðslum Sesko, sem hefur verið frá keppni síðan í september.

„Við vonumst til að fá skýrari svör fljótlega. Ég er ekki að reyna að draga þetta á langinn en vonandi vitum við meira undir lok vikunnar. Það hefur verið unnið að því að komast til botns í þessu,“ sagði Carrick.

Leny Yoro tekur einnig út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik gegn Atlético Madríd.

Matthijs De Ligt gæti snúið aftur eftir meiðsli og komið inn í liðið, en einnig kemur til greina að gefa einhverjum af ungu leikmönnunum, Dan Armer, Jaydan Kamason eða Harry Amass, tækifæri.

United hefur unnið einn leik í Meistaradeildinni til þessa, en liðið tapaði 2-0 fyrir Atlético í síðustu umferð.

Líklegt byrjunarlið Man Utd: Lammens (M), Dalot, Maguire, De Ligt/Mazraoui, Mazraoui/Amass, Baleba, Santos, Diallo, Fernandes, Cunha, Mbeumo.
Harry Amass gæti fengið tækifæri

Harry Amass gæti fengið tækifæri

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.