Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 21. nóvember 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ancelotti myndi elska að vinna aftur með Khedira
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, hefur sagst vilja vinna með Sami Khedira, Þjóðverjanum sem ekki er í náðinni hjá Juventus.

Khedira hefur sagst alltaf hafa dreymt um að spila í ensku úrvalsdeildinni og gefið í skyn að hann myndi elska að vinna með Ancelotti.

„Ég á góðar minningar af Khedira frá tíma okkar hjá Real Madrid, hann er frábær atvinnumaður," sagði Ancelotti á blaðamannafundi.

„Ég myndi elska að vinna með honum en það er langur vegur frá því að segja það og fá hann til að koma til Everton," bætti Ancelotti við.

Khedira er 33 ára gamall og gekk í raðir Juventus árið 2015. Hans síðasti leikur með Juve var gegn AC Milan í sumar en hann hefur verið úti í kuldanum og auk þess glímt við meiðsli síðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner