lau 21. nóvember 2020 13:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðni stýrir FH áfram
Guðni Eiríksson.
Guðni Eiríksson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðni Eiríksson verður áfram þjálfari kvennaliðs FH, sem féll úr Pepsi Max-deildinni á síðustu leiktíð.

FH endaði í næst neðsta sæti Pepsi Max-deildarinnar, stigi frá öruggu sæti. Ákveðið var að blása Íslandsmótið af þegar flest lið áttu tvo leiki eftir, þar á meðal FH.

Guðni mun stýra FH áfram þegar liðið leikur í Lengjudeildinni næsta sumar.

Tilkynning FH
Guðni Eiríksson hefur verið endurráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá FH.

Guðni tók við liðinu haustið 2018 og undir hans stjórn endaði liðið í öðru sæti Inkasso-deildarinnar sumarið 2019 og komst þar með aftur upp í Pepsi Max-deildina. Þegar keppni var hætt þann 30. október sl. vegna kórónuveirufaraldursins voru tvær umferðir eftir í Pepsi Max-deild kvenna. FH var á þeim tímapunkti annað tveggja liða í fallsæti með 16 stig.

Það er skýrt markmið FH að eiga lið í efstu deild kvenna og við ætlum að endurheimta sætið í Pepsi Max-deildinni eins fljótt og auðið er. Guðni hefur átt langt og farsælt starf fyrir FH og við hlökkum til áframhaldandi starfs með honum þar sem markmiðið er að FH verði leiðandi félag í kvennaknattspyrnunni á Íslandi á komandi árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner