Fotbolti.net
21.11.26 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Framlengdi fyrir 300. leikinn

Framlengdi fyrir 300. leikinn
Canon

Mynd: EPA

Þýski miðjumaðurinn Pascal Gross hefur framlengt samning sinn við Brighton en samningurinn gildir út sumarið 2028.
Þessi 35 ára gamli leikmaður hefur spilað virkilega vel á þessu tímabili en hann hefur skorað fimm mörk og lagt upp sex í 17 leikjum.

„Við erum mjög ánægð að Pascal hafi skrifað undir nýjan samning. Við getum talað um gæðin á vellinum, mörkin, stoðsendingarnar og fótboltagáfuna, en hann er líka frábær leiðtogi í hópnum," sagði Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.

„Hann tengist mismunandi kynslóðum og þjóðernum í hópnum. Hann er verðmætur því hann hjálpar öllum að skilja hvað það þarf til að ná árangri."

Hann mun spila sinn 300. leik fyrir félagið þegar Brighton mætir Hull á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.