20.11.26 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola: Get ekki lýst því hversu mikið ég dáist að Klopp

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Pep Guardiola hrósaði Jurgen Klopp í hástert í viðtali við Bundesliga Magazine en þeir börðust hart um árabil þegar Guardiola var við stjórnvölin hjá Man City og Klopp hjá Liverpool.
„Hann er einn af þeim bestu í bransanum og ég get ekki einu sinni lýst því hversu mikið dáist að honum. Hann er þannig manneskja og þjálfari að hann gerir heimsfótboltann betri," sagði Guardiola.
Guardiola segir að þýska landsliðið sé í góðum höndum undir stjórn Klopp.
„Ég held að undir hans forystu muni Þýskaland geta snúið aftur á réttan stað, að fólk muni sjá landsliðið á annan hátt aftur, að gleðin muni koma aftur og aðdáendurnir muni vera stoltir af liðinu sínu á ný," sagði Guardiola.