Fotbolti.net
21.11.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Albert klár í slaginn - „Í hæsta gæðaflokki"

Albert klár í slaginn - „Í hæsta gæðaflokki"
Canon

Mynd: EPA

Albert Guðmundsson er loksins að snúa aftur eftir erfið meiðsli en hann er í hópnum hjá Lazio sem mætir Lecce í ítölsku deildinni í dag.

Hann hefur ekkert getað spilað síðan hann meiddist á öxl í leik íslenska landsliðsins gegn Eistlandi í Þjóðadeildinni þann 26. september.
„Þegar Albert er heill er hann í hæsta gæðaflokki, hvað varðar gæði og færni. Margir sem hafa ekki spilað mikið fá tækifæri á að byrja á morgun (í dag). En það er möguleikki að einn þeirra spili meira en aðrir," sagði Gennaro Gattuso.

Lazio er á toppnum í ítölsku deildinni með eins stigs forystu á Inter og tveggja stiga forystu á Roma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.