20.11.26 - 17:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ólafur Örn til Víkings (Staðfest) - Lánaður til HK

Mynd: Víkingur

Mynd: Víkingur
Markvörðurinn Ólafur Örn Ásgeirsson, Óli Neuer eins og hann er kallaður, er genginn til liðs við Víking frá HK. Hann gerir samning út árið 2030. Hann verður áfram hjá HK á láni út næsta tímabil.
„Ólafur verður áfram í Kópavogi á láni út tímabilið 2027, þar sem hann fær reglulegan spilatíma. Að því loknu kemur hann til Víkings og keppir um stöðu aðalmarkmanns. Víkingur og HK hafa átt gott samstarf í málinu. Bæði félög telja að þessi leið henti Ólafi best á þessum tímapunkti ferilsins," segir í tilkynningu frá Víkingi.
Ólafur er 23 ára gamall uppalinn HK-ingur. Hann hóf meistaraflokksferilinn árið 2020 þegar hann kom við sögu í einum leik með Ými.
"Ólafur er einn efnilegasti markmaður landsins og hefur mikið af þeim eiginleikum sem við leitum að. Stærðin segir sína sögu en hann er mjög sterkur á milli stangana og mjög góður í föstum leikatriðum og að sækja fyrirgjafir. Við teljum best fyrir hann að spila reglulega hjá HK eitt tímabil í viðbót. Svo kemur hann til okkar til þess að vinna sér inn stöðuna. Við viljum harða samkeppni um markmannsstöðuna og Ólafur fær alvöru tækifæri til að verða aðalmarkmaður Víkings," sagði Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
Hann spilaði sinn fyrsta leik í bikarnum fyrir HK árið 2022. Hann var aðalmarkvörður liðsins síðasta sumar þegar liðið tapaði í undanúrslitum umspilsins gegn Fylki. Hann hefur einnig verið á mála hjá Þrótti Vogum, ÍR og Völsungi.