20.11.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sarr um áhuga Liverpool: Auðvitað tekur maður því alvarlega

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ismaila Sarr var á óskalista Andoni Iraola, stjóra Liverpool, síðasta sumar en Sarr var um kyrrt hjá Crystal Palace.
Sarr segist hafa íhugað hvað það hefði gert fyrir ferilinn ef hann hefði orðið leikmaður Liverpool.

„Liverpool er eitt stærsta félag í heimsfótboltanum og þegar svona félag sýnir áhuga á þér þá tekur maður því auðvitað alvarlega," sagði Sarr.
„Enginn leikmaður myndi standa á sama um slíkt tækifæri Þetta var spennandi kostur og ég hugsaði hvað það hefði gert fyrir ferilinn minn. Þessum kafla er lokið. Ég hef alltaf trúað því að þú getir ekki haldið áfram ef þú ert alltaf að horfa í baksýnisspegilinn."
Sarr er á meiðslalistanum en hann staðfesti í viðtali við BBC að hann væri í viðræðum um framlengingu á samningnum sínum.
„Ég er leikmaður Crystal Palace. Ég er stoltur af árangrinum okkar og ég einbeiti mér að komast aftur á völlinn og hjálpa lliðinu."